lítið að fréttaGuðrún Ósk Lange


já þá er bara vinnuvika á leikskólanum sem burjar reyndar ekki vel er heima með gubbupest svo ekki gaman.
 
En já í seinustu vikun var vinna hjá póstinum líka þannig mikið að gera. Á föstudaginn var bara farið heim og fengið sér bjór eftir langa vinnuviku. Á laugardaginn var svo fótboltamót hjá póstinum en ég var bara að horfa á en kallin tók þátt og liðið hans lenti í þriðja sæti. Þegar mótið var búið var farið heim og tekið sig til og fengið sér bjór og svo var haldið á hressó þar sem póstliðið hittist og það var geðveikt gaman. Ég ætla síðan að reyna að fara að setja inn myndir en þar sem þetta er allt farið í bland í vélini ætla ég bara að gera bland albúm.
Á sunnudaginn var farið í heimsókn til mömmu og pabba og þar var Jens bróðir min og konan hans Kristín og litla sætasta frænka mín hún Katrín Lára.
 Síðan pöntuðum við okkur ferð til spánar sem við ætlum að fara í júlí.

Annars ætla ég að fara að standa mig í þessu bloggi en ég veit ekki hvort ég færi mig einhvert annað, sjáum til.
Annar bara bless í bili

langt líðurGuðrún Ósk Lange


Jæja þá er langt síðan ég hef skrifan en ég hef bara ekki haft tíma.

En já ég hef bara verið að vinna á fullu og aðra hverja viku er ég að vinna hjá póstinum þannig að ég er að vinna aðra hverja viku til klukkan tíu eða hálf ellefu og já þá gerir maður lítið annað en að koma heim og fá sér að borða og fara svo að sofa. En um helgina var lítið gert við tólum því bara rólega og vorum bara heim og lágum í leti og horfðum á sjónvarpið.

Já svo er líka HM í handbolta þannig að ég er alltaf upptekin á vissum tímum eða það er að segja þegar það er handbolti í sjónvarpinu og það er bara búið að vera gaman hjá mér.

Ég var að fara á taugum þegar við vorum að spila á móti Frökkunum. En í dag töpuðum við fyrir Pólverjum þannig að við verðum bara að taka slóveníu. En annars ætla ég bara að láta þetta gott heita í bili og bið bara heilsa í bili.

nýtt árGuðrún Ósk Lange

Gleðilegt nýtt ár

 Happy New Year 

já það er langt síðan ég hef skrifað en ég ákvað bara að taka mér pásu yfir hátíðirnar.

En annars er ekkert að frétta nema bara ég er búin að vera vinna á fullu. Er byrjuð að vinna hjá póstinum aðra hverja viku á kvöldin sem er bara mjög fínt. Annars ligg ég nú bara heima lasin núna.

Ég ákvað að kíkja aðeins út með kallinum og Ella sem er að vinna með honum. Svo þegar ég var niðrí bæ hitti ég jennu og þegar við vorum að tala saman þá ákvað röddin mín að yfirgefa mig og ég er búin að liggja heima raddlaus með kvef og hita.

En já ég ætla bara að hafa þetta stutt núna því ég þarf að fara að baka svo þanga til næst bið ég bara að heisla.





jólin kominGuðrún Ósk Lange

Já þá eru jólin komin.

Við ákváðum að gefa okkur góða jólagjöf og keyptum okkur nýjan bíl toyota prius. En já við ætlum bara vera í mat hjá tengdó á aðfangadag og svo kíkjum við til mömmu og pabba og svo verðum við bara í matarboðum alla næstu viku.

Ég ætla ekkert að vera skrifa mikið núna, ætla bara að skrifa aftur eftir jól.

Ég vil bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

3D Santa

loksinsGuðrún Ósk Lange


já þá er ég laus við gipsið og vá hvað það er gott. Ég get loksins farið að vinna á mánudaginn jibbí.
Annars eru þessar þrjár vikur búnar að vera góðar til að undir búa jólin. 
3D Santa 

Við erum búin að kaupa allar jólagjafir og nú er bara að pakka þeim inn, svo er verið að klára að skrifa jólakortin. Og já Guðrún er búin að skreyta hjá sér. Ég er svo mikið jóla barn að það er endalaust skraut á svölunum og séríur inni. Brynjari finnst nú alveg komið nóg en ég gæti alveg skreyt meira.

Annars er voða lítið að frétta er bara búin að vera að undirbúa jólin eins og ég sagði og er það eini ljósi punkturinn við það að vera búin að vera föst heima í þrjár vikur og ég að maðurinn minn er mjög fegin að ég get farið að labba aftur. Ég ég er búin að nota hann sem einkabílstjóra.

Annars erum við að fara á jólahlaðborð með vinnuni minni í kvöld og svo á morgun förum við í afmæli til Ernu. Þannig það er mikið að gera og ég ætla reyna að passa mig á hálkunni svo ég detti nú ekki aftur.

En já ég ætla að bara að skrifa meira um helgina á sunnudaginn þannig að ég segi bara bless í bili.





tvær vikur búnarGuðrún Ósk Lange

já ég er búin að vera heima í tvær vikur og ein vika eftir.
Guð hvað það er leiðinlegt að hanga svona heima, en já það eru tvær vikur síðan ég fótbrotnaði. Ég er búin að vera dugleg að draga Brynjar út um allt þegar hann er ekki að vinna þvæi ég get ekki keyrt og já ég er að vera búin að gera öll jólakort og á ekki mikið eftir af jólagjöfum þannig það er kannski það eina jákvæða við þetta allt saman, ég verð búin að öllu fyrir jólin þegar ég fer að vinna aftur.

En annars er voða lítið að frétta, ég get ekki beðið eftir því að komast aftur að vinna, mér hlakkar svo til. Þegar maður er að vinna á fullu langar manni að komast í smá frí en þegar maður neiðist til þess að fara í frí og er fastur heima hjá sér langar manni að fara að vinna. Vá hvað maður getur verið skrítinn stundum.

En já ég var að setja inn nýjar myndir.

Bless í bili

jæja þá er það ykkar orðGuðrún Ósk Lange

já endilega svara

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

óheppnin mínGuðrún Ósk Lange

jæja þá er helgin búin.

helgin byrjaði vel. Við fórum í fimmtugs afmæli á föstudaginn og þar var svaka stuð, fórum heim um fjögurleytið.

Á laugardaginn var síðan tekið til og farið í tveggja ára afmælisveislu hjá
Jens Bjarna og það var fínt. Um kvöldið komu Erna og Sveinn í  mat til okkar og það vara svaka stuð fórum svo öll niðri bæ sem var bara gaman. En þegar kvöldið var á enda og við lögðum á stað heim á leið ákvað ég að labba upp á gangstétt svo það yrði nú ekki keyrt á mig en ég hefði betur átt að labba á götuni því um leið og ég er komin upp á ganstétt renn ég til í hálkunni og mistíg mig. Í morgun þegar ég vaknaði gat ég ekki stígið í fótinn þannig að við fórum á slysó og það endaði með því að ég fór í gips og er óvinnu fær næstu þrjár vikur bara mín heppniHlæjandi. Þar sem ég er þannig manneska að ég get eiginlega ekki verið bara heima á ég örugglega eftir að rotna heima.

En annars er nú örugglega hægt að fara bara að skreyta hjá sér eða einhvað.

Ég ætla að reyna að fara að setja inn einhverjar myndir þannig bara bíðið róleg.

Ég skrifa bara meira seinna.

Bið að heisla í bili

Vikan á endaGuðrún Ósk Lange


já þá er vikan á enda. Það er nú ekki mikið búð að gerast hjá mér, þetta ver stutt vinnu vika fyrir mig, fór ekki að vinna fyrr en á miðvikudaginn.

En já ég og Brynjar kíktum út á lífið með Jennu og Elínu á laugardaginn seinnasta til að lyfta okkur aðeins upp og það var svo gaman og einmitt það sem við þurftum. Hittum fullt af vinum okkar.
Við fórum á Hressó og þar hittum við Ernu og svein og það var svo gott að hitta þau, þau eru svo yndislrg og Erna þú ert yndisleg vinkona og ég er svo feigin að við erum farnar að hafa samband aftur.

Í gærkvöldi var lítið gert nema hanga heima á meðan kallinn var að keyra leigubíl. Í kvöld ooo mig langar svo að kíkja út á djammið því kallinn er líka að keyra leigubíl í kvöld(maður verður nú að nota það þegar kallin er að keyra leigubíl) en því miður eru allar vinkonur mínar uppteknar við annað.
Já svona er þetta það er svo mikið að gera.

Svo er búið að vera svo kalt úti þessa viku að maður hefur þurft að krafa upp vetrar fötin. Sumir eru farnir að tala um það að nú fara jólin að nálgast en ég meina það eru alveg 33dagar til jóla   svo   comon. En í leikskólanum er verið að gera allt klárt, láta krakkana gera jólagjafir og svoleiðis.
Já og sumir eru farnir að skreyta hjá sér, mér finnst það of snemmt, bíða til fyrsta des.

jæja ég held að ég sé bara farin að bulla hérna þennig að ég held að ég kveðji bara í bili.

p.s Ég vildi bara þakka öllum vinkonum mínum og vinum alment fyrir allt saman og bara fyrir að vera til.


Vinir


Yndisleg eru þau í alla staði,
aldrei hefur gerst að þau yfir mig vaði.
Alltaf tilbúin að hlusta á mín mál
og gefa um leið innblástur í mína sál.

Þau búa yfir rosalegum sjarma
sem gefur frá stóran bjarma.
Stoltur er ég að eiga þau sem að
og alltaf mættu þegar um hjálp ég bað.

Hverfa munu þau aldrei úr lífi mínu
og þau orð meiga þau geyma í hjarta sínu
Minningar margar eigum við saman
og að rifja þær upp er ótrúlega gaman.

Takk fyrir

Þessi færsla er læst með lykilorði.Guðrún Ósk Lange

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Tenglar

Auglýsing

afmæli